Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
eim kipp, þegar hrökkva að óvöru upp
inir andlegu kraftarnir hans
Og hugsjónin birtist. — Og kreddan í kór
hygst kreppa inni sannleikans geim;
En víðari og hærri þó hann er, en svo,
að húki undir veggjunum þeim!
Í stefi, í elding, á busk eða í borg
eins birtist sú dýrlega sýn —
En Ragnheiði litlu var lokað og byrgt
hvert ljós, sem í bókmentum skín.
Og daglegu störfin sem ánauðarok
Hún öll fyrir kaupgjaldið bar —
Tvær skemtanir kepti hún að kostgæfa helzt,
það kyrkjan og danshöllin var.
En fram liðu árin. — Og foreldrar nú
sig flutt höfðu úr borg út á land,
En eftir varð Ragnheiður. Búhag var breytt
til betra, þau skorti ekki grand.
En hún hafði líka oft bjargað þeim bezt,
því baslið var erfitt og langt.
En nú var það sigrað, og útlitið ei
jafn eindæma tvísýnt og strangt.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>