Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
Og aldrei var hraði hans harðari en þá;
hann hentist og sentist og þaut.
Én út frá mér strikbeint og stöðvunarlaust
hver starna upp á himninum rann,
Og vélin spjó eisu við andköfin djúp,
sem iðaði í loftinu og brann;
En sléttan flaut blækyr og biksvört í kring
sem barmalaust, öldulaust flóð.
Sem glóðþrunginn Naglfari lestin vor löng
þann lognsæ af náttskuggum óð.
En svo er ei heldur löng hressing í því,
en hálfleiðist manni það fljótt,
Að streitast við næðinginn, stallbróður sinn,
og starast í augu við nótt;
Og helzt fanst mér stundirnar hægja á sér
því harðara farið sem var —
Í næsta vagn gekk ég svo óboðinn inn,
að athuga mannlífið þar.
En handleiðslan æðri vist lagði mér lið
og leiddi mig inn á þann stig.
Eg rak mig þar öldungis óvænt á prest
og Íslending rétt eins og mig.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>