Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
Hjá báðum það hafði vist of-kólnað oft
um ævina, göfuga frú!
Sem útskaga kaldbakur kalinn er eg,
sem kulnaður gígur ert þú.
Ég gladdist að sjá, hversu hreykinn og hress
og hnarreistur presturinn var,
Og fallegur krans, sem á lokinu lá
á lík-kistu Ragnheiðar þar,
Og útförin fjölsótt, sem ant væri þjóð
nú orðið að kveðja’ hana og sjá,
Hve hagorð öll bænin og vegsemdin var,
sem vinur minn hlóð hana á.
Því morguninn sama barst sagan í kring
á svipstund — oft lengd, stundum hálf,
Að stúlkan, sem lá þarna, leyst hefði barn
úr lífsháska, en farist þar sjálf.
Svo útbreiddist fréttin og frásagan óx
en fáum var ljóst, hvað hún hét,
Svo íslenzka konan hún aðeins var nefnd.
Það orðsporið nægja sér lét.
Og þá kom að hitta minn háttvirta prest
ein hefðarfrú, göfug og rík,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>